Þjónusta við Íslendinga
Sendiráðsprestur
Íslenski presturinn í London hefur reglulega viðveru í íslenska sendiráðinu í London á almennum skrifstofutíma frá klukkan 09:30-16:00 daglega, nema á fimmtudögum. Prestur sinnir ýmsum verkefnum í sendiráðinu, er meðal annars ritari Sjóðs Egils Skallagrímssonar og annast aðstoð við Íslendinga sem eru í einhvers konar erfiðleikum. Prestur annast svo reglulegt helgihald í London, á Humbersvæðinu og í Edinborg.
Hægt er hafa samband við prestinn með því að hringja í sendiráðið í síma 00 44 (0) 2072 593 999 eða senda tölvupóst chaplain@mfa.is


