Ökuskírteini
Umsóknir um endurnýjun ökuskírteinis
Hægt er að sækja um endurnýjun á íslensku ökuskírteini í sendiráðinu í London.
Umsókninni þarf að fylgja svokallað kennispjald, sem útvega þarf frá Ríkislögreglustjóra. Nauðsynlegt er að hringja í sendiráðið fyrirfram, gefa upp nafn og íslenska kennitölu og biðja sendiráðið að útvega kennispjaldið. Fylla þarf út umsókn í sendiráðinu, koma með eina mynd og greiða GBP 30,00 í reiðufé.
Afgreiðslutími ökuskírteinis er um fjórar vikur.
Bent er á að ætlast er til að Íslendingar sem eru með fasta búsetu erlendis, þ.e.a.s. búnir að búa í meira en 6 mánuði í landinu, leggi inn íslenska ökuskírteinið og fái útgefið skírteini þess lands í staðinn. Það eru lögregluyfirvöld í viðkomandi landi sem óska eftir þessu. Ökuskírteinið er því lagt inn hjá embættinu sem gefur út nýtt skírteini og sér það embætti um að senda ökuskírteinið til Íslands.


