Um sendiráðið
Sendiráð Íslands í London var opnað árið 1940 og var annað íslenska sendiráðið sem opnað var eftir að íslenska utanríkisþjónustan var stofnuð sama ár. Sendiráðið þjónar Bretlandi og níu öðrum ríkjum, þ.e. Grikklandi, Hollandi, Indlandi, Írlandi, Líbanon, Maldíveyjum, Möltu, Nepal og Nígeríu.
Tuttugu og sjö ræðisskrifstofur eru í umdæmislöndum sendiráðsins, þ.a. fimmtán í Bretlandi. Sendiráðið er jafnframt fastanefnd Íslands gagnvart Alþjóðasiglingamálastofnuninni (IMO) í London.
Hlutverk sendiráðsins er að veita þjónustu við Íslendinga í umdæmisríkjunum og gæta hagsmuna Íslands, einkum á sviði utanríkis-, viðskipta- og menningamála. Á árinu 2004 bjuggu um 2-3 þúsund Íslendingar í Bretlandi og á árinu 2003 nam fjöldi erlendra ferðamanna á Íslandi sem komu frá Bretlandi um 55 þúsund manns.
Embassy of Iceland in London
2A Hans Street - Kort
London SW1X 0JE, UK



