Embassy of Iceland - London, UK

2A Hans Street, London SW1X 0JE, UK - Tel.: +44-20-7259-3999


Tungumál


News and Events


News and Events

Íslenskt Evróvision partí

24.5.2008

Laugardaginn þann 24. maí verður haldið Eurovisíonparty á The Old Explorer við Oxford Circus og munu Sverrir Stormsker og Alda Björk Ólafsdóttir koma og skemmta gestum. Sverrir er landsmönnum vel kunnur enda búinn að vera með mörg vinsæl lög í gegnum árin og má þar m.a. nefna Sókrates, Bless, Búum til betri börn, Horfðu á björtu hliðarnar, Hildur og Sigurlagið svo eitthvað sé nefnt.

Félagsmenn eru hvattir til þess að fjölmenna á svæðið og gæða sér á ferskum samlokum en til sölu verða ekta íslenskar samlokur með roastbeef & remúlaði, rækjusalati, hangikjöti & baunsalati og svo eggi & grænmeti.

Þá verða m.a. boðnar upp ferðir til Íslands með Flugleiðum og geta heppnir félagsmenn nælt sér í ódýra farmiða og einnig tekið þátt í happadrætti til styrktar félaginu en glæsilegir vinningar verða í boði.

Ýmsar uppákomur munu eiga sér stað og mun allur ágóði af kvöldinu renna til styrktar félagsins.

Húsið opnar klukkan 18:00 og barinn lokar kl 01:00.

Athugið að salurinn tekur takmarkaðan fjölda af gestum og eru því allir þeir sem ætla sér að mæta á svæðið hvattir til þess að tryggja sér aðgengi með því að senda nafn sitt ásamt fylgdarliði til info@ifelag.co.uk sem fyrst.

Athugið að það kostar ekkert inn og allir eru velkomnir!

The Old Explorer
23 Great Castle street
Oxford Circus
London, W1G 0JA



 

 

E-mail:


Fax:

+44 20 7245 9649


Opening Hours:

Mon-Fri
9:30-16:00


Languages:

Icelandic, English


 


Leturstærð: